Leikskólinn Tjörn
Leikskólinn Tjörn

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.

Leikskólinn Tjörn er fjögurra deilda leikskóli með 70 börnum á aldrinum 2–6 ára. Skólinn er starfræktur í tveimur húsum, annars vegar við Tjarnargötu við Tjörnina í Reykjavík og hins vegar á Öldugötu, steinsnar frá Landakotstúni.

Nánasta umhverfi leikskólans er einstakt og býður upp á fjölbreytt námstækifæri. Í nágrenni skólans eru Hljómskálagarðurinn, Landakotstún, Hólavallagarður, miðbærinn, Reykjavíkurhöfn, fjöldi almenningsgarða, fjaran við Ægisíðu og margar helstu menningarstofnanir borgarinnar, svo sem Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Borgarbókasafnið.

Við leitum að skapandi, jákvæðu og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun, reynslu eða áhuga á starfi með ungum börnum. Í Tjörn leggjum við áherslu á hlýlegt, faglegt og lifandi leikskólastarf þar sem frumkvæði barna, vinátta og gleði eru höfð að leiðarljósi.

Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem litið er á barnið sem hæfileikaríkan, skapandi og virkan þátttakanda í eigin námi. Við leggjum áherslu á öflugt myndlistarnám, skapandi vinnu, rannsóknir barna og tíðar vettvangsferðir í perlur borgarinnar.

Einkunnarorð Tjarnar eru: Frumkvæði, vinátta og gleði og þau endurspeglast í daglegu starfi með börnunum. Í báðum húsum starfa matreiðslumenn og allur matur er eldaður frá grunni, sem skapar heimilislegt og nærandi umhverfi fyrir börn og starfsfólk.

Leikskólakennari starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við aðra starfsmenn og deildarstjóra
  • Hafa samskipti og samvinnu við foreldra í samstarfi við deildarstjóra
  • Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Menningarkort
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • 36/38 stunda vinnuvika fyrir 100% starf
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur þegar á við
  • Frír matur í hádeginu sem er eldaður frá grunni í eldhúsi skólans af matreiðslumeistara
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnargata 33, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar