
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli varð til 1. ágúst 2002 við sameiningu skólanna tveggja á Selfossi, Sólvallaskóla og Sandvíkurskóla. Skólinn er því nýr skóli á gömlum grunni. Vallaskóli er tæplega 600 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. smiðjukennsla á unglingastigi, öflugt list og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild, sjá www.vallaskoli.is.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, jákvæðan aga, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Starfsmenn skólans munu taka þátt í stefnumörkun hans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagins Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Umsjónarkennar á yngsta stigi í Vallaskóla - 100% staða
Vallaskóli er um 500 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. öflugt list- og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild. Í Vallaskóla er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Auglýst er eftir tveimur 100% stöðum umsjónarkennara á yngsta stigi frá 1. janúar 2027.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum.
- Tekur þátt í teymisvinnu/teymiskennslu í árgangi.
- Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn.
- Fylgist með velferð nemenda og hlúir að þeim í samstarfi við fagaðila eftir þörfum.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni og áhugi á skólastarfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur.
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi
Borgarbyggð

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær