

Við leitum að dásamlegum samstarfsaðila
Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leiðbeinanda í 100% stöðu.
Regnboginn er 3ja deilda, sjálfstætt starfandi leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.
Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.
Vinnutímastytting hjá okkur er tekin daglega og er vinnutími er 7 klst og 15 mínútur.
Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.
Í Regnboganum starfar öflugur hópur starfsfólks sem er samheldinn, skemmtilegur og jákvæður. Rík áhersla er á að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu.
Í síðustu starfsánægjukönnun svaraði allt starfsfólk því að þeir myndu mæla með Regnboganum sem vinnustað!
Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.
Nánari upplýsingar veita Fanney Guðmundsdóttir, skólastjóri, í netfanginu [email protected] og Sigríður Ámundadóttir, rekstraraðili, í netfanginu [email protected]
- Menntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og stundvísi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð íslenskukunnátta
Íslenska










