
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Sjálandsskóli - stuðningsfulltrúar
Sjálandsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80-100% starf.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli í Garðabæ. Í skólanum eru 280 nemendur og starfsmenn eru rúmlega 60. Í Sjálandsskóla vinna allir starfsmenn saman að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu og hafa hag nemenda að leiðarljósi. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og til virkrar þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Fríðindi í starfi
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur11. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniKennslaMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (11)

Stuðningsfulltrúi óskast í Seyðisfjarðarskóla
Seyðisfjarðarskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Stuðningsfulltrúi óskast við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli