Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli - náms- og starfsráðgjafi

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða náms- og starfsráðgjafa í fullt starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en um er að ræða tímabundna afleysingu fyrir þetta skólaár.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 290 nemendur. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allt starfsfólk vinnur saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf með áherslu á útinám. Aðstaða starfsfólks og nemenda er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að veita ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
  • Umsjónarmaður samskiptateymis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af námsráðgjöf og starfi með börnum er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaðu

*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfann starfsmann.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar