Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara í sérdeild í 100% starf.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Fyrir nokkru hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna kennslu í sérdeild í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Kennslureynsla í sérdeild kostur
- Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Færni í gerð sjónræns skipulags kostur
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
- Víðtæk tölvukunnátta
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og samviskusemi
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Arna B. Arnardóttir, [email protected] eða Margrét Ósk Gunnarsdóttir, [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2025.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.