SL Lífeyrissjóður
SL lífeyrissjóður er opinn sjóður með eignir er nema yfir 250 milljörðum króna og eiga um 150 þúsund einstaklingar réttindi hjá sjóðnum. SL lífeyrissjóður hefur aldrei þurft að skerða lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga. Sjóðurinn hefur frá upphafi verið varfærinn fjárfestir og tekur alvarlega það hlutverk að fara gætilega með fjármuni sem fjöldi fólks byggir fjárhagslega afkomu sína á. Í dag starfa að jafnaði um 17 manns hjá sjóðnum.
Sviðsstjóri áhættustýringarsviðs
SL lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling með yfirgripsmikla þekkingu á áhættustjórnun í starf sviðsstjóra áhættustýringarsviðs.
Sviðsstjóri áhættustýringarsviðs er einn af lykilstarfsmönnum sjóðsins og heyrir undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar, skipulagi og innra eftirliti.
- Umsjón og mótun áhættustefnu og áhættustýringarstefnu.
- Greining, mæling og vöktun áhættu ásamt skýrslugjöf.
- Eftirlit með markaðsáhættu, fjárfestingarákvörðunum og áreiðanleika gagna.
- Heildaryfirsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðanda og innri úttektir.
- Eftirlit með fylgni fjárfestinga við lög og fjárfestingarstefnu sjóðsins.
- Samskipti, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til eftirlitsaðila og stjórnenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun t.a.m. á sviði fjármála-, verk-, eða tölfræði. Framhaldsmenntun er kostur.
- Reynsla af greiningarvinnu og/eða áhættustýringu sem nýtist í starfi.
- Hæfni til að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með skipulögðum hætti.
- Reynsla af gagnavinnslu og viðskiptagreindartólum (s.s. Power BI).
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
- Sjálfstæði í starfi og ögun í vinnubrögðum.
- Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur9. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Enska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Vörustjóri greiðslna - Viðskiptalausnir
Landsbankinn
Sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs
Hafnarfjarðarbær
Umsjónaraðil TextílLabs Textílmiðstöðvarinnar
Textílmiðstöð Íslands
Verkefnastjóri endurbótaverkefna á Norðurlandi
Landsvirkjun
Veghönnuður
VSB verkfræðistofa
Sviðsstjóri samgöngu- og skipulagssviðs
VSB verkfræðistofa
Gatna- og veituhönnuður
VSB verkfræðistofa
Fjölbreytt sumarstörf hjá Veitum
Veitur
Sérfræðingur í launaafgreiðslu
Fjársýslan
Sérfræðingur á sviði loftslagsmála - ETS viðskiptakerfi ESB
Umhverfis- og orkustofnun
Sérfræðingur í teymi hafs og vatns
Umhverfis- og orkustofnun
Sérfræðingur - Deild stöðugleika, líkinda og gagnastjórnunar
Alvotech hf