Sérfræðingur á sviði loftslagsmála - ETS viðskiptakerfi ESB
Laus eru til umsóknar tvö störf sérfræðinga á sviði loftslagsmála í teymi loftgæða og losunarheimilda. Teymið ber m.a. ábyrgð á utanumhaldi með framkvæmd viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir fyrir Ísland, ETS.
Helstu verkefni sérfræðinganna munu felast í utanumhaldi með framkvæmd viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir hvað varðar iðnað, flug og sjóflutninga í samstarfi við aðra teymismeðlimi. Þá eru greiningar vegna breytinga á viðskiptakerfinu einnig hluti starfsins en fyrirséð er að umfang kerfisins muni aukast á næstu árum og fleiri geirar bætast við. Markmið með starfi teymisins er að tryggja að þeir aðilar sem falla undir viðskiptakerfið uppfylli kröfur kerfisins ma. með yfirferð á skýrslum er varðar vöktun og losun gróðurhúsalofttegunda sem aðilar í kerfinu skila til stofnunarinnar. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir.
- Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir varðandi losun frá iðnaði, sjóflutningum og/eða flugi - umsjón með kerfinu í teymisvinnu
- Samskipti við rekstraraðila, stjórnvöld og systurstofnanir vegna losunar gróðurhúsalofttegunda
- Utanumhald og yfirferð gagna frá rekstraraðilum er varða losun og vöktun
- Stjórnsýsluverkefni, m.a. innleiðing reglugerða
- Miðlun upplýsinga til almennings og hagsmunaaðila
- Samskipti við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem umhverfisfræði, náttúruvísindi eða verkfræði
- Gagnalæsi, talnagleggni og færni í Excel
- Þekking á ETS gerðum og Evrópusamvinnu er kostur
- Stafræn verkefni - þekking og geta til að sýna frumkvæði
- Góð samstarfshæfni og vilji til að vinna í teymi
- Gott vald á framsetningu efnis á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð