Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Vörustjóri greiðslna - Viðskiptalausnir

Við leitum að öflugum liðsfélaga í teymi Viðskiptalausna til að vinna að verkefnum sem snúa að uppbyggingu, framþróun og rekstri greiðslulausna bankans.

Vörustjóri greiðslna mótar framtíðarsýn þjónustu/vöru sem styður við stefnu bankans. Starfið felur í sér að forgangsraða í samvinnu við hagsmunaaðila og verkefnanefnd sem og að taka að sér hlutverk verkefnastjóra og/eða vera eigandi verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun nýrra greiðslulausna og ábyrgð á viðskiptalegri virkni þeirra
  • Verkstjórn og fagleg ábyrgð á viðskiptalegri þróun innri og ytri greiðslulausna, bæði nýsmíði og viðhald núverandi kerfa
  • Virk þátttaka í undirbúningi fyrir bankatækni framtíðarinnar
  • Í samráði við viðskiptaeiningar og hagsmunaaðila, að verkefnastýra, annast áætlanagerð, virðismeta og forgangsraða verkefnum tengdum greiðslum
  • Gerð handbóka og fræðsluefnis ásamt miðlun upplýsinga til bæði starfsmanna og viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Yfirgripsmikil reynsla, þekking og áhugi á innlendri og/eða erlendri greiðslumiðlun
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stafrænni þróun og upplýsingatækni
  • Umbótahugsun og lausnamiðuð nálgun
  • Frumkvæði og færni í samskiptum
  • Góð færni í íslensku og ensku
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar