Veghönnuður
VSB verkfræðistofa óskar eftir áhugasömum, sjálfstæðum og drífandi tækni- eða verkfræðingi með sérhæfingu í hönnun gatna og vega á byggðatæknisviði fyrirtækisins. Í boði eru fjölbreytt verkefni á fjölskylduvænum vinnustað með góðum starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnun gatna og vega
- Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana
- Verkefnastýring
- Samskipti við verkkaupa og aðra hagaðila
- Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði
- Haldbær reynsla af hönnun gatna og vega
- Þekking af helstu hönnunar– og greiningartólum s.s. AutoCAD og Civil 3d
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi:
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
- Sími og símareikningur greiddur af VSB
- Íþróttastyrkur
Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggðatæknisvið þar sem starfa í dag 9 sérfræðingar við hönnun gatna, veitna og mælingar. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og í síma 511 1225.