VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa

Sviðsstjóri samgöngu- og skipulagssviðs

VSB óskar eftir öflugum leiðtoga til að stýra sviði samgangna og skipulags á VSB verkfræðistofu. Viðkomandi hefur yfirumsjón með daglegri stjórnun sviðsins og situr i í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni á fjölskylduvænum vinnustað með góðum starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórnun sviðsins
  • Þátttaka í stefnumótun sviðsins og fyrirtækisins.
  • Verkefnastýring
  • Þátttaka í samgönguverkefnum, t.d. samgönguskipulag, samgöngumat, umferðarhermun, valkostagreiningar, verkefni tengd Borgarlínunni og almenningssamgöngum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi
  • Haldbær reynsla af samgöngu- og skipulagsmálum
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar, framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp sterka liðsheild
  • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu gagna
  • Farsæl reynsla af verkefnastýringu og stjórnun mannauðs
  • Þekking á íslenskum lögum og reglugerðum er varða samgöngu- og skipulagsmál
  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Þekking af Norðurlandamáli er kostur
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
  • Sími og símareikningur greiddur af VSB
  • Íþróttastyrkur

Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði og að Iðavöllum 12a í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.


Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og í síma 511-1225.

Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur18. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar