ÓJ&K-Ísam
ÓJ&K-Ísam

Fjármálastjóri

ÓJ&K-Ísam leitar að fjármálastjóra. Við leitum að drífandi einstakling með brennandi áhuga á breytingastjórnun og sjálfvirknivæðingu ferla. Fjármálastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og uppgjöri félagsins. Hann leiðir teymi sem sinnir bókhaldi, innheimtu og ber ábyrgð á sjálfbærnimálum félagsins. Fjármálastjóri er einn af lykilstjórnendum og situr í framkvæmdastjórn félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegri stjórnun fjármála, þar á meðal mánaðarleg uppgjör, fjarstýring og greiningar
  • Leiðir og hefur yfirumsjón með öflugu fjármálateymi
  • Áætlanagerð og eftirlit með framvindu hennar með frávikagreiningum
  • Ábyrgð á bókhaldi og gerð ársreiknings
  • Ábyrgð á reikningagerð og innheimtu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Farsæl reynsla af fjármálastjórnun og rekstri
  • Háskólamenntun á sviði fjármála, viðskiptafræði eða tengdu sviði
  • Reynsla af breytingastjórnun og sjálfvirknivæðingu ferla er kostur
  • Hæfni til að setja fram og greina tölulegar upplýsingar á skýran hátt
  • Góð kunnátta á Axapta/Navision og OLAP-teningum
  • Frábær samskiptahæfni og hæfileiki til að byggja traust innan og utan fyrirtækisins
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur9. febrúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar