Félagsbústaðir
Félagsbústaðir

Sérfræðingur í reikningshaldi og uppgjörum

Félagsbústaðir leita nú að drífandi og kraftmiklum sérfræðingi í reikningshaldi og uppgjörum. Í starfinu felst meðal annars ábyrgð á öllu bókhaldi félagsins, reglulegri uppgjörsvinnu og sjálfbærniskýrslugerð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á fjárhagsbókhaldi, afstemmingum og reglulegum uppgjörum
  • Umsjón með sjálfbærniskýrslugerð, þróun innra eftirlits, eftirfylgni með reglufylgni, auk samstarfs við ytri endurskoðendur varðandi sjálfbærniupplýsingagjöf
  • Ábyrgð á virðisaukaskattsmálum
  • Ábyrgð á ferla- og gæðamálum fjármálasviðs
  • Umsjón með samþykktarferli reikninga
  • Kostnaðargreiningar og rekstrareftirlit
  • Skipulagning og leiðsögn í bókhaldsverkefnum ásamt þátttöku í ‏þróun bókhalds- og upplýsingakerfa.
  • Skýrslugjöf til innri og ytri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun í reikningsskilum og endurskoðun er kostur
  • Reynsla af bókhalds- og uppgjörsvinnu
  • Einlægur áhugi á sjálfbærni málefnum, ásamt vilja til að byggja upp þekkingu á því sviði sem og regluverki og umgjörð sjálfbærniskýrslugerðar
  • Framúrskarandi tölvukunnátta
  • Reynsla af innleiðingu bókhaldskerfis kostur
  • Hæfni og færni í notkun bókhalds- og upplýsingakerfa
  • Reynsla af að greina og nýta tækifæri til sjálfvirkni og aukinnar skilvirkni er kostur
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt28. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þönglabakki 4, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar