Húnaþing vestra
Húnaþing vestra
Húnaþing vestra

Viltu hafa áhrif á umhverfi þitt?

Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttu starfi verkefnisstjóra umhverfismála á umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviði Húnaþings vestra með megin starfsstöð í Ráðhúsi sveitarfélagsins á Hvammstanga. Verkefnisstjóri ber ábyrgð á útliti og ásýnd sveitarfélagsins með verkefnum sem lúta að grænum svæðum, leikvöllum, íþróttavöllum og lóðum stofnana sveitarfélagsins. Hann stýrir vinnuskóla sveitarfélagsins og tekur þátt í innleiðingu heimsmarkmiða, heilsueflandi samfélags og barnvæns sveitarfélags. Hann tekur þátt í áætlanagerð er tengist þróun og skipulagi sveitarfélagsins, m.a. með styrkumsóknum og framkvæmd verkefna sem styrkir fást til. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs og vinnur verkefnisstjóri ýmis verkefni önnur sem sviðsstjóri felur honum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning, umsjón og eftirlit með grænum svæðum ásamt leikvöllum, íþróttavöllum og lóðum stofnana sveitarfélagsins og ásýnd þess.
  • Ábyrgð og umsjón með vinnuskóla og sláttuhóp, ráðning starfsmanna, þjálfun, verkstjórn o.s.frv.
  • Umsjón með gerð og innleiðingu umhverfis- og loftslagsstefnu og innleiðingu Grænna skrefa. Í stofnunum sveitarfélagsins.
  • Umsjón með umhverfisviðurkenningum. 
  • Þátttaka í innleiðingu heimsmarkmiða, heilsueflandi samfélags og barnvæns sveitarfélags.
  • Þátttaka í áætlanagerð er tengist þróun og skipulagi sveitarfélagsins, einkum með tilliti til útivistar og grænna svæða. 
  • Gerð umsókna um styrki til þróunar og eflingu sveitarfélagsins og framkvæmd verkefna sem styrkir fást til.
  • Gerð fjárhagsáætlana fyrir ofangreint í samvinnu við sviðsstjóra. Ber fjárhagslega ábyrgð á sínum málaflokkum.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem sviðsstjóri felur verkefnisstjóra, svo sem skýrslugerð, skjalavinnsla o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur.
  • Leiðtogahæfni, hæfni til að hafa yfirsýn og rík þjónustulund.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framúrskarandi hæfni til og reynsla af því að taka þátt teymisvinnu.
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni, árvekni og nákvæmni í störfum.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar.
  • Reynsla af gerð styrksumsókna er kostur.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og áætlunargerð er kostur.
  • Reynsla af verkstjórn og af störfum með ungu fólki er kostur.
  • Þekking og reynsla af umhverfis- og loftslagsmálum er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð og óflekkað mannorð.

Auglýsing birt24. janúar 2025
Umsóknarfrestur9. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Windows
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar