

Starfsmaður Íþróttafélagsins Þingeyings
Íþróttafélagið Þingeyingur leitar að skipulögðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni til að sinna fjölbreyttu starfi innan félagsins. Starfsmaðurinn kemur að umsjón og framkvæmdum ýmissa verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi, sem og umsjón, skipulagningu og þjálfun íþrótta- og æskulýðsstarfs á svæðinu.
Starfið getur verið ein staða í 100% starfshlutfalli eða fleiri stöður í minna starfshlutfalli hver.
Um er að ræða nýtt starf innan félagsins.
Launakjör fara eftir kjarasamningi Starfsgreina Sambandsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en önnur starfskjör fylgja samningi Landssambands Íslenzkra Verzlunarmanna og Samtaka Atvinnulífsins.
- Umsjón og framkvæmd verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi.
- Aðgangsstýring, ræsting og skipulag útleigu á mannvirkjum.
- Stuðningur við daglegan rekstur félagsins og aðstoð við stjórn Þingeyings, eftir því sem við á.
- Skipulag, umsjón og þjálfun á æfingum félagsins og hreyfiverkefni í samstarfi við Öxarfjarðarskóla.
- Virkja og auka æfingaframboð á Kópaskeri og í Lundi.
- Skipulagt íþróttastarf fyrir börn að jafnaði 1–2 sinnum í viku.
- Aðkoma að starfi eldri borgara á svæðinu í formi hreyfingar.
- Undirbúningur, dagleg þáttaka, skipulag og framkvæmd Sumarfrístundar í Öxarfirði, í samstarfi við Norðurþing.
- Þátttaka í daglegu starfi Sumarfrístundar á sumartímabili.
- Utanumhald og umsýsla með rafrænum kerfum félagsins, þar á meðal Abler.
- Innleiðing og uppfærsla á stefnum og viðbragðsáætlunum.
Nokkur sveigjanleiki er til staðar varðandi starfið þar sem það er til þróunar og hægt að móta að einhverju leyti eftir styrkleikum og áhuga öflugra umsækjenda.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Almenn tölvuþekking og færni.
- Reynsla af þjálfun eða kennslu í æskulýðstarfi eða sambærilegum störfum er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
- Jákvæðni, starfsgleði, frumkvæði og sveigjanleiki.
- Samviskusemi, stundvísi og skipulagshæfni.
- Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
- Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Íslenska
Enska










