Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Sérfræðingur í teymi hafs og vatns

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í teymi hafs og vatns á sviði umhverfigæða hjá Umhverfis- og orkustofnun. Verkefni teymisins snúast um verndun hafs og stranda landsins gegn mengun og athöfnum sem stofnað geta heilbrigði manna og lífríki hafsins í hættu og viðbrögð við bráðamengun á hafi. Annað meginverkefni teymisins er að vinna að heildstæðri verndun vatns, vatnasvæða og vistkerfa. Sérfræðingurinn mun starfa í öflugum hópi þar sem áhersla er lögð á framsýni, samstarf og árangur í þverfaglegri samvinnu. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi verkefni tengd verndun hafs sem m.a. tengjast nýsköpunarverkefnum á sviði loftslags og orkumála. Helstu verkefni sérfræðingsins snúa að alþjóðaskuldbindingum Íslands í hafmálum og framkvæmd laga og reglugerða um varnir gegn mengun hafs og stranda. Í starfinu felst jafnframt að vinna með öðrum fagstofnunum og hagsmunaaðilum að málefnum er varða málaflokkinn og falla innan starfssviðs Umhverfis- og orkustofnunar. Starfið felur í sér þátttöku í alþjóðasamstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Málefni er varða varnir gegn mengun frá skipum
  • Viðbrögð við bráðamengun hafs og stranda
  • Verkefni er tengjast mengun og athöfnum á hafsvæðum
  • Erlent og innlent samstarf sem tengist málefnum hafsins, s.s. þátttaka í starfi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) er varðar umhverfismál
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði náttúruvísinda, verkfræði eða sambærileg menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking á skipum og málefnum hafsins er mikill kostur
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og geta til að sýna frumkvæði
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Stafræn hæfni 
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
Fríðindi í starfi

Spennandi vinnuumhverfi í nýrri stofnun 

Umhverfis- og orkustofnun er ný stofnun sem fer með stjórnsýslu og eftirlit auk annarra verkefna á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefna auðlindanýtingar. Stofnunin tók til starfa þann 1.1.2025 við sameiningu Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar.

Vinnuumhverfi nýrrar stofnunar verður metnaðarfullt og við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á sífelldar umbætur og stafræna þróun. Áhersla verður á heilsu, öryggi og vellíðan og að búa skilyrði fyrir starfsfólk okkar til að þróast og eflast í starfi. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Við vinnum í opnum rýmum og leggjum áherslu á gott andrúmsloft í teymisvinnu og samstarf á milli teyma. 

Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is og Orkustofnun á os.is en nýr vefur Umhverfis- og orkustofnunar uos.is opnar fljótlega.

Sviðsstjóri sviðs umhverfisgæða er Lilja Ólafsdóttir. Teymisstjóri teymi hafs og vatns er Halla Einarsdóttir og veitir hún nánari upplýsingar um starfið auk Sigurrósar Friðriksdóttur sérfræðings og  Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 591 2000.

Hvar má bjóða þér að vinna?

Umhverfis- og orkustofnun mun starfa á 6 starfsstöðvum um landið. Valið stendur um Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstaði, Selfoss, Reykjavík og Hvanneyri. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélag hafa gert. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. 

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingarinnar.

Við hvetjum áhugasama einstaklingatil að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar