Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Deildarstjóri hugbúnaðarteymis áhættustýringar og fjármála

Íslandsbanki leitar að jákvæðum, drífandi og metnaðarfullum leiðtoga í starf deildarstjóra áhættustýringarlausna og fjármála innan Gagnaþjónustu Íslandsbanka. Deildin er hluti af sviðinu Stafræn þróun og gögn.

Í starfinu felst tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á nútímalegum gagnainnviðum í einu þekktasta og virtasta fyrirtæki landsins ásamt því að þróa framtíðar lausnir fyrir áhættustýringu og fjármálasvið bankans.

Tilgangur bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka og við trúum því að skynsamleg hagnýting gagna sé ein af grunnstoðum þess að veita viðskiptavinum okkur bestu þjónustuna.

Hlutverkið felur í sér að vera í forystu fyrir hóp reyndra og hæfileikaríkra sérfræðinga, ásamt því að taka þátt í starfi og þróun áhættustýringar og fjármála og vera í forystusveit þegar kemur að gagnalausnum bankans. Deildarstjórinn vinnur í nánu samstarfi við forstöðumann Gagnaþjónustu, framkvæmdastjóra áhættustýringar og aðra hagaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg stjórnun deildarinnar, forgangsröðun verkefna, áætlanagerð og framfylgni
  • Náið samstarf með hagsmunaðilum við kortlagningu og greiningar á tækifærum til úrbóta
  • Þátttaka í hönnun og þróun tæknilausna í samstarfi við forstöðumann Gagnaþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt hugarfar, framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Framsækni, metnaður og drifkraftur
  • Háskólapróf í hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða skyldum greinum
  • Reynsla af hugbúnaðargerð á fjármálamarkaði
  • Reynsla af stjórnun hugbúnaðarteyma
  • Reynsla og þekking af fjármálastarfsemi og / eða áhættustýringu er mikill kostur
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur13. febrúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeanPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar