Teymisstjóri hugbúnaðarteymis
Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar?
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum teymisstjóra hugbúnaðarteymis (e. development team lead) til að leiða þverfaglegt teymi sérfræðinga hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar.
Þú munt vinna með fjölbreyttu teymi forritara, prófara, hönnuða og vörustjóra við þróun stafrænna lausna sem bæta og einfalda þjónustu fyrir borgarbúa og starfsfólk borgarinnar. Sem teymisstjóri hugbúnaðarteymis (e. development team lead) munt þú hafa leiðandi og styðjandi hlutverk með því að stuðla að sjálfstæði og sjálfstýringu teymisins. Þú munt einnig bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd verkefna og hjálpa teyminu að halda fókus á afhendingu hugbúnaðarlausna.
Ef þú hefur frábæra samskipta- og skipulagshæfni ásamt brennandi áhuga á tæknilegri framþróun og notendamiðaðri nálgun, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig!
- Leiða og styðja þverfaglegt hugbúnaðarteymi í þróun stafrænna lausna Reykjavíkurborgar
- Skipuleggja og stýra verkefnum með áherslu á gagnsæi, skilvirkni og stöðuga afhendingu
- Viðhalda yfirsýn yfir verkefnastöðu og framvindu verkefna
- Aðstoða við úrlausn vandamála og tryggja að hindranir í þróunarferlinu séu leystar hratt og örugglega
- Vinna náið með vörustjórum, stafrænum leiðtogum og öðrum hagsmunaðilum til að tryggja að markmið og væntingar séu samræmd
- Umsjón með útgáfum og samhæfa viðbragð við atvikum í rekstri
- Efla og viðhalda góðum samskiptum innan teymisins og við aðra starfshópa eða utanaðkomandi samstarfsaðila
- Hvetja til lausnamiðaðrar hugsunar, nýsköpunar og notkunar á bestu starfsvenjum í hugbúnaðarþróun
- Skapa jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi sem eflir starfsánægju teymisins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunarfræði eða verkfræði
- Reynsla af leiðtogahlutverki í hugbúnaðarþróun, verkefnastjórnun eða sambærilegu starfi
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að leiða fjölbreytt teymi til árangurs
- Góð þekking og/eða reynsla á Agile aðferðafræði
- Þekking á tæknistakknum okkar er kostur (React, TypeScript, .NET, MS SQL, Azure Web Apps)
- Þekking á notendamiðari hönnun og viðmóthönnun (UX/UI) er kostur
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Hæfni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku