Háskóli Íslands
Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Auk tæplega þrettán þúsund nemenda starfa þar rúmlega sextán hundruð fastráðnir starfsmenn og yfir tvö þúsund stundakennarar og lausráðnir starfsmenn.Megin hlutverk Háskólans er að vera vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun. Til þess að svo megi vera þarf fjölmarga ólíka starfsmenn.
Háskóli Íslands er lifandi samfélag þar sem saman koma einstaklingar með ólíkan bakgrunn en allir vinna þó að sama marki að gera Háskóla Íslands að enn öflugri menntastofnun en hún er í dag.
Markmið Háskóla Íslands er að vera í fremstu röð háskóla og að nota alþjóðlega viðurkennda mælikvarða við allt gæðamat á starfi skólans. Gerðar eru kröfur til kennara, stjórnenda og annars starfsfólks til að ná þessu markmiði.
Í könnunum sem gerðar hafa verið um starfsumhverfi Háskóla Íslands kemur í ljós að starfsánægja er mikil, starfsandi góður og starfsfólk telur sig vera í góðri aðstöðu til að þróast í starfi.
Teymisstjóri launavinnslu á mannauðssviði
Laust er til umsóknar fullt starf teymisstjóra launavinnslu á mannauðssviði Háskóla Íslands. Teymið ber ábyrgð á launavinnslu starfsfólks Háskóla Íslands. Í starfinu felst náið samstarf við stjórnendur Háskóla Íslands. Teymið veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu til starfsfólks og stjórnenda um laun og önnur kjarasamningbundin réttindi, auk þess að annast samskipti við ytri hagsmunaaðila sem málaflokknum tengjast, s.s. fjársýslu ríkisins, lífeyrissjóði og aðrar stofnanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun teymis launaráðgjafa, útdeiling verkefna og eftirfylgni
- Umsjón og eftirfylgni með launavinnslu háskólans
- Ber ábyrgð á að unnið sé í samræmi við lög, reglur og kjarasamninga við launavinnslu
- Gerð verklagsreglna og leiðbeininga um launamál
- Skrá, greina og vinna með upplýsingar úr launakerfi HÍ
- Ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk um launa- og kjaramál
- Umbótaverkefni á sviði mannauðs- og launavinnslu
- Þáttaka í verkefnum tengdum jafnlaunakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla af launavinnslu og notkun launavinnslukerfa
- Þekking á kjarasamningsumhverfi er æskileg
- Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Góð samstarfshæfni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
- Nákvæmni og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur7. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
MeðalhæfniNauðsyn
Enska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar