Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sérfræðingur í Microsoft Dynamics 365 / CRM

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum forritara með staðgóða kunnáttu í Dynamics 365, sérþekkingu á CRM, til að ganga til liðs við teymi forritara og sérfræðinga innan Arion.


Starfið felur í sér þróun og aðlögun lausna fyrir CRM kerfið, sem leikur lykilhlutverk í þjónustu við viðskiptavini Arion og dótturfélaga. Mikil áhersla er lögð á samþættingu við önnur hugbúnaðarkerfi, yfir vefþjónustur eða aðrar leiðir sem tryggja stöðugt gagnflæði milli kerfa.

Viðkomandi staða er innan hugbúnaðardeildar á upplýsingatæknisviði (UT) Arion.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun, þróun og viðhald lausna í Dynamics 365 CRM umhverfum Arion.
  • Þátttaka í greiningu á viðskiptakröfum og samskipti við notendur.
  • Hönnun og útfærsla á samþættingum við önnur kerfi, þjónustur og gagnalindir.
  • Skjölun á vinnuferlum og tækniumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun.
  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að greina og útfæra tæknilegar lausnir.
  • Reynsla af útfærslu lausna í Dynamics 365, sérstaklega á CRM virkni.
  • Góð samskipta- og teymisfærni.
  • Frumkvæði og metnaður til að læra og þróast í starfi.
  • Reynsla af samþættingu Dynamics 365 við önnur kerfi er æskileg.
  • Reynsla af forritun s.s. í C#/.NET og/eða JavaScript telst kostur.
  • Þekking á vinnu með gögn er kostur.
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur13. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Microsoft CRMPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar