Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í tímabundið starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Smárahvammi. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Um er að ræða 40% starf tímabundið til allavega 6 mánaða með möguleika á að hækka í prósentu yfir sumartímann. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar-, morgun-, kvöld- og næturvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Rakel Einarsdóttir ingae@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 7.2.2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Auglýsing birt23. janúar 2025
Umsóknarfrestur7. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smárahvammur 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar