Verkstjóri í Vinnuskóla - Skemmtilegt starf með ungu fólki
Hafnarfjarðarbær auglýsir laus til umsókna störf verkstjóra í Vinnuskóla Hafnarfjarðar sumarið 2025
Vinnuskólinn óskar eftir metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingum til að gegna stöðu flokkstjóra í sumar. Starfið er tímabundið og varir í 2–4 mánuði á tímabilinu maí/júní til júlí/ágúst.
Um er að ræða skemmtilegt starf með ungu fólki í sumar. Verkstjórar Vinnuskólans eru næstu yfirmenn flokkstjóra sem leiða unglingahópa í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast umhirðu bæjarins og tiltekt. Vinnuskólinn hefur um 30 flokkstjóra yfir sumarið og veitir um 1000 ungmennum á aldrinum 14–17 ára sumarvinnu og starfsreynslu. Næsti yfirmaður verkstjóra er umsjónarmaður Vinnuskólans, en starfað er í nánu samstarfi við garðyrkjustjóra.
Umsækjendur skulu vera 21 árs eða eldri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipulagning vinnu
- Almennt utanumhald og stuðningur við störf flokkstjóra Vinnuskólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Þekking á verkstjórn og garðyrkjustörfum kostur
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Almenn tölvukunnátta
Eftirfarandi störf eru í boði í sumar:
Verkstjóri vinnuskóla
Auglýst er eftir verkstjórum til sumarstarfa við verkstjórn almennra hópa Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistörf. Skólahverfum bæjarins er skipt í tvennt og ber verkstjóri ábyrgð á öðrum helmingnum. Verkstjóri stýrir og leiðbeinir verkefnum flokkstjóra á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir flokkstjóra.
Verkstjóri slátturhóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn slátturhóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum slátturhóp, stýrir verkefnum á verkstað, gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn og hefur umsjón með vélum og búnaði sláttuhópa.
Verkstjóri viðhaldshóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn viðhaldshóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.
Verkstjóri blómahóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn blómahóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri ber ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Ef þú hefur áhuga á að vinna í líflegu og gefandi starfsumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á unga einstaklinga, þá hvetjum við þig til að sækja um!
Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Dahl Christiansen, rekstrarstjóri, á netfanginu [email protected]
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.