
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur í rannsóknaskyni, á fimm starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Sérfræðingur í verkefnastoð - Endurbótaverkefni
Nú er verk að vinna
Nú fer í hönd eitt mesta framkvæmdatímabil í sögu Landsvirkjunar, enda þarf að afla orku fyrir orkuskipti og almenna þörf samfélagsins á komandi árum. Við leitum að einstaklingum í hlutverk sérfræðinga til að veita faglega forystu við þróun og uppbyggingu á verkfærakistu verkefnastjóra framkvæmdasviðs, með skilvirkni og árangur að leiðarljósi.
Deildin hefur það hlutverk að skilgreina og innleiða vinnulag og tæknilausnir sem stuðla að framúrskarandi stýringu framkvæmdaverkefna. Þá leiðir deildin verkefnaskrá endurbótaverkefna,frá eignastýringu yfir í framkvæmd.
Helstu verkefni og ábyrgð
- ber ábyrgð á þróun og eftirfylgni verkefnaskrár endurbótaverkefna
- þróar og stuðlar að samræmdu verklagi við verkefnastjórnun, þvert á svið og deildir
- leiðir og tekur þátt í umbótaverkefnum
- aðstoðar við greiningu á mannaflaþörf og leiðir samræmingu innan sviðsins
- tekur þátt í þróun á mælaborðum, s.s. Power BI, sem styðja við starfsemina
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði
- þekking og reynsla af verkefnastjórnun, IPMA vottun er kostur
- þekking á gæðastjórnun og áhættustjórnun
- mjög góð tölvu- og hugbúnaðarfærni
- leiðtogahæfni, lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt25. mars 2025
Umsóknarfrestur6. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BreytingastjórnunFrumkvæðiMetnaðurVerkefnastjórnunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í mannvirkjaeftirliti
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Forstöðumaður launadeildar
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Skólastjóri útilífsskóla Svana
Skátafélagið Svanir

Verkefnastjórn og framkvæmdaráðgjöf byggingarframkvæmda
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri

Sölustjóri heildsölu
Blue Lagoon Skincare

Fjármálasvið - Sumarstarf
Samkaup

Tæknistjóri (CTO)
Reykjavik Geothermal

Ert þú samningaséní?
Landsvirkjun

Markaðssetning á netinu
ENNEMM

Nýsköpunarstjóri í viðskiptaþróun
Landsvirkjun

Burðarvirkjahönnuður
exa nordic