

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra launa- og kjaramála. Starfið heyrir undir forstöðumann fjármála og greiningar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Verkefnastjóri launa- og kjaramála ber ábyrgð á og sinnir allri almennri launavinnslu háskólans, ásamt því að vinna að úrlausn ýmissa mála er tengjast launa- og kjaramálum. Í því felst m.a. gerð ráðningarsamninga, stigamat starfa, utanumhald um kennslu- og rannsóknarskyldu kennara, yfirvinnu og orlof auk útreikninga á ýmsum aukagreiðslum. Verkefnastjórinn sinnir einnig upplýsingagjöf og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks og tölulegri úrvinnslu sem tengist launa- og kjaramálum. Verkefnastjórinn tekur þátt í úrlausn álitamála og endurskoðun stofnanasamninga með þátttöku í samstarfsnefndum stéttarfélaga starfsfólks og HA. Verkefnastjórinn sér um að meta störf í stoðþjónustu og stjórnsýslu og kemur að vinnu við jafnlaunavottun með ýmsum hætti.
-
Háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfi nauðsynlegt.
-
Góð almenn tölvukunnátta og talnagleggni nauðsynleg.
-
Mjög gott vald á tölulegri úrvinnslu í Excel nauðsynlegt.
-
Þekking á kjarasamningum og úrvinnslu þeirra nauðsynleg.
-
Þekking og reynsla af launakerfi ríkisins Oracle mjög æskileg.
-
Þekking á stjórnsýslulögum og starfsemi háskóla æskileg.
-
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli er mikilvægt.
-
Skipuleg og vönduð vinnubrögð, ábyrgðarkennd ásamt þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mjög mikilvæg.













