

Sölustjóri heildsölu
Við leitum að öflugum einstaklingi til að leiða heildsölu Blue Lagoon Skincare á Íslandi.
Blue Lagoon Skincare starfar á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og annast þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu húðvara undir vörumerkinu Blue Lagoon Skincare. Húðvörurnar komu fyrst á markað árið 1995, hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og eru B Corp vottaðar. Undir starfsemi fyrirtækisins heyrir rekstur fjögurra sérverslana og heildsölu á Íslandi sem og rekstur dótturfélaga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á sölu og þjónustu til innlendra og erlendra viðskiptavina á Íslandi í gegnum endursöluaðila.
- Að hafa frumkvæði að nýjum viðskiptum og byggja upp og viðhalda núverandi viðskiptasamböndum.
- Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Greining og eftirfylgni með söluþróun, markaðsþróun og tækifærum til vaxtar.
- Eftirlit með samkeppni á markaði, verðlagningu, framboði og dreifingu vara á markaði.
- Ábyrgð á að viðhalda háu þjónustustigi.
- Gerð tilboða, eftirfylgni og samningagerð.
- Þátttaka í sýningum, ráðstefnum og öðrum viðburðum sem styrkja stöðu fyrirtækisins á markaði.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sölustýringu á heildsölumarkaði æskileg
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af greiningu og framsetningu tölulegra gagna
- Þekking á fjárhagskerfinu Business Central er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
- Nákvæm vinnubrögð og lausnamiðað hugarfar
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2025.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.
Í boði er starf á lifandi og skemmtilegum vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins ásamt ýmsum öðrum fríðindum sem starfsfólki Bláa Lónsins bjóðast.













