Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Sérfræðingur í teymi lána og stofnframlaga

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðismála, fasteignamarkaði og mannvirkjamála?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) leitar að metnaðarfullum sérfræðingi sem þrífst vel í umhverfi árangurs, framþróunar, góðra samskipta og skilvirkrar þjónustu.

Húsnæðissvið er öflugt svið hjá HMS sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði húsnæðismála sem m.a. fela í sér að meta stöðu íbúðauppbyggingar í hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum ásamt því að setja fram áætlun um hvernig sveitarfélög ætla að mæta húsnæðisþörf heimila, bæði til skemmri og lengri tíma. Auk þess að aðstoða einstaklinga og lögaðila með því að fjármagna ný heimili með stofnframlögum og lánveitingum í samræmi við metna þörf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, skönnun, vistun gagna, vinnsla og frágangur umsókna um ný útlán- og yfirtökur á eldri lánum einstaklinga og lögaðila.
  • Ráðgjöf til viðskiptavina tengt nýjum útlánum og yfirtökum á eldri lánum, þ.m.t. almenn lánaráðgjöf og yfirferð á útlánagögnum s.s. niðurstöðum greiðslumats og stöðluðum upplýsingum til lántaka.
  • Undirbúningur og framlagning umsókna fyrir lánanefnd og frágangur mála í kjölfar afgreiðslu lánanefndar.
  • Þátttaka í móttöku og úrvinnslu erinda sem berast vegna stofnframlaga, þ.m.t. úthlutun stofnframlaga skv. lögum nr. 52/2016.
  • Samskipti við umsækjendur og aðra hagaðila vegna útlána og stofnframlaga.
  • Utanumhald og samantekt tölfræðiupplýsinga um málefni teymisins.
  • Þátttaka í þróun á vinnuferlum og kerfum tengdum daglegum verkefnum.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á tengdu sviði er kostur, ásamt reynsla í opinberri stjórnsýslu.
  • Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
  • Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar.
  • Rík þjónustulund, mikil færni í samskiptum og samstarfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar