Aðalbókari Nespresso á Íslandi
Perroy ehf - Nespresso á Íslandi leitar að metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf aðalabókara á fjármálasvið fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af svipuðu starfi og yfirgripsmikla þekkingu á almennum bókhaldsreglum.
Starfið heyrir undir fjármálastjóra en krefst einnig samstarfs við aðrar deildir innan fyrirtækisins.
· Umsjón og ábyrgð á daglegri færslu bókhalds
· Innheimta
· Skráning kostnaðarreikninga
· Reikningagerð
· VSK uppgjör
· Launavinnsla
· Samskipti við vskm, stm, lndr og tengdar stofnanir
· Afstemmingar lndr, vskm og bankareikninga
· Skil á bókhaldi til endurskoðanda í samráði við fjármálastjóra
· Önnur tilfallandi verkefni
· Lágmark 3-5 ára reynsla af bókhaldsstörfum
· Menntun sem nýtist í starfi, viðskiptafræði, viðurkenndur bókari eða sambærilegt
· Mjög góð almenn tölvukunnátta, excel, office 365
· Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð
· Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
· Reynsla af Navision og BC kostur