Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfar öflugur hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Stofnunin hefur aðsetur á þremur stöðum, Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki
Lögfræðingur í markaðseftirliti
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis, fasteigna, mannvirkja, brunavarna og vöruöryggis.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf lögfræðings í teymi markaðseftirlits. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í öflugu og samheldnu teymi sem sinnir markaðseftirliti og upplýsingagjöf til neytenda um þær vörur sem eru á markaði hérlendis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lögfræðiráðgjöf og fræðsla á sviði vöruöryggis og markaðseftirlits
- Undirbúningur stjórnvaldsákvarðana og úrlausn lögfræðilega álitaefna
- Gerð leiðbeininga og verklagsreglna innan málefnasviðsins
- Umsjón með ritun greinargerða vegna kærumála
- Aðkoma að greiningu og innleiðingu EES-löggjafar
- Þátttaka í frumvarpsgerð, ritun umsagna og vinna við reglugerðarbreytingar
- Þátttaka í stefnumótun og þróun málaflokksins
- Ráðgjöf og samskipti við hagaðila innan málefnasviðsins
- Ýmis önnur verkefni sem til falla á sviðinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
- Þekking á stjórnsýslurétti og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði
- Þekking á EES-rétti er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum og hæfileikar til að starfa í hópi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (11)
Tollverðir í Keflavík – lifandi störf í litríku umhverfi
Skatturinn - Tollgæsla Íslands
Sérfræðingur í deild afnota og eftirlits
Umhverfis- og skipulagssvið
Forstöðumaður Viðskiptaeftirlits
Íslandsbanki
Sérfræðingur í starfi með ungmennum og upplýsingamiðlun
Umboðsmaður barna
Lögfræðingur í lögfræðiráðgjöf
Arion banki
Löglærður fulltrúi á lögmannsstofu
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners
Skatturinn leitar að sérfræðingum á Ísafirði
Skatturinn
Sérfræðistörf á Akureyri á þjónustu- og upplýsingasviði
Skatturinn
Drekadalur - Deildarstjórar
Reykjanesbær
Lögfræðingur
Coripharma ehf.
Verkefnastjóri skipulagsmála hjá Akureyrarbæ
Akureyri