Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Sérfræðingur í kerfisgreiningum

Viltu móta framtíð raforkukerfis Íslands?

Við leitum að öflugum sérfræðingi í kerfisgreiningum til að taka þátt í spennandi verkefnum sem snúa að þróun og uppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi.
Þetta er einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á framtíð raforkukerfisins í takt við orkuskipti og innleiðingu nýrra orkugjafa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem sérfræðingur í kerfisgreiningum munt þú vinna með framsæknu teymi sérfræðinga við að:
 
  • Greina flutningskerfið og vinna að áætlanagerð sem mótar fjárfestingar Landsnets.
  • Leita lausna á fjölbreyttum áskorunum með áherslu á afkastagetu, sveigjanleika og áreiðanleika raforkukerfisins.
  • Nýta aflflæðiherma og önnur sérhæfð verkfæri til að styðja við ákvarðanatöku og stefnumótun í uppbyggingu kerfisins.
 
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir eftirfarandi:

  • Menntun á sviði raforkuverkfræði. Marktæk starfsreynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
  • Reynsla af kerfisgreiningum með hjálp aflflæðilíkana er æskileg, hvort sem er úr menntun eða fyrri störfum.
  • Góð greiningarhæfni, færni í gagnavinnslu og framsetningu upplýsinga.
  • Hæfni í textaskrifum og skýrslugerð er æskileg.
  • Grunnþekking á forritun er kostur.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð ásamt hæfni til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og tjá sig skýrt.
Fríðindi í starfi

Skemmtilegt og metnaðarfullt starfsumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar og frábæru mötuneyti. Tækifæri til að vaxa í starfi, bæta við þig þekkingu og taka þátt í mikilvægum samfélagsverkefnum. Áhrifaríkt hlutverk í orkuskiptum Íslands.

Auglýsing birt21. febrúar 2025
Umsóknarfrestur10. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Miðás 7A, 700 Egilsstaðir
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar