VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa

Tækniteiknari

VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan og reynslumikinn tækniteiknara til framtíðarstarfa. Í boði eru spennandi verkefni á byggingarsviði og byggðatæknisviði í góðu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tækniteiknun á byggingarsviði, þ.m.t. burðarvirki, raflagnir og lagnir
  • Tækniteiknun á byggðatæknisviði, þ.m.t. götur og veitur
  • Þátttaka í hönnunarverkefnum
  • Frágangur og útgáfa teikninga í samráði við fagstjóra
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun í tækniteiknun
  • Haldbær reynsla af sambærilegum störfum
  • Þekking af helstu hönnunar– og greiningartólum s.s. AutoCAD, Civil3D og Revit
  • Reynsla af MagiCAD er kostur
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Nákvæmni, skiplagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Fríðindi í starfi:

  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
  • Sími og símareikningur greiddur af VSB
  • Íþróttastyrkur

Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.


Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og í síma 511 1225.


Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur18. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar