Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Við leitum að öflugum liðsmanni í raflínuteymið okkar!

Við leitum að fjölhæfum og lausnamiðuðum einstaklingi til að styrkja raflínuteymið okkar. Starfið er fjölbreytt og gegnir lykilhlutverki í að tryggja örugga afhendingu rafmagns um land allt. Helstu verkefni fela í sér eftirlit, viðhald og viðgerðir á háspennulínum og strengjum sem krefst mikillar útiveru í fjölbreyttum aðstæðum. Aðalstarfsstöðin er í Reykjavík, en vinnusvæðið nær yfir allt Ísland.

Hjá Landsneti starfar öflugt og samhent starfsfólk sem leggur sitt af mörkum til að halda ljósunum logandi, tækjunum gangandi og raforkunni streymandi. Hvort sem er beint eða óbeint, styðjum við öll við uppbyggingu, þróun og rekstur raforkukerfisins.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að liðsfélaga með

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi (kostur)
  • Reynslu af vinnu við vélar og/eða rafmagn.
  • Sterka öryggisvitund.
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð.
  • Frumkvæði, drifkraft og sjálfstæði í starfi.
  • Jákvætt, uppbyggilegt og lausnamiðað viðhorf.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
  • Stuðning við að vaxa í starfi og bæta við þig þekkingu.
  • Tækifæri til að vinna við verkefni sem skipta máli fyrir samfélagið!
Auglýsing birt10. febrúar 2025
Umsóknarfrestur24. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar