Burðarvirkjahönnuður
VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hönnuðar burðarvirkja. Hönnuður burðarvirkja starfar á byggingarsviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnun burðarvirkja og gerð séruppdrátta
- Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
- Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
- Gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana, verklýsinga og greinagerða
- Samskipti við verkkaupa og aðra hagaðila
- Almenn ráðgjöf til viðskiptavina og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði
- Reynsla af brúarhönnun sem og af hönnun for- og eftirspenntra mannvirkja
- Góð kunnátta á Revit
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi:
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinnustefna
- Sími og símareikningur greiddur af VSB
- Íþróttastyrkur
Um VSB
VSB er fjölhæf verkfræðistofa á sviði skipulags, hönnunar og framkvæmda sem veitir viðskiptavinum ráðgjöf þar sem hagkvæmni, fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði. Á VSB er öflugt byggingarsvið þar sem starfa í dag 11 sérfræðingar við hönnun burðarvirkja, rafmagns, lagna- og loftræsingar. VSB hefur aðsetur að Bæjahrauni 20 í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VSB www.vsb.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.