Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leiðtogi grunnskólamála - Nýtt og spennandi starf

Leit stendur yfir að metnaðarfullum og öflugum leiðtoga. Um er að ræða áhugavert starf deildarstjóra sem felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum tengdum stjórnun grunnskóla og kallar á einstakling með góða samskiptahæfni, sem hugsar í lausnum og hefur ástríðu fyrir skólastarfi. Nýtt og spennandi starf leiðtoga hefur það að markmiði að efla enn frekar metnaðarfullt og fjölbreytt starf grunnskóla og tónlistarskóla sveitarfélagsins.

Deildarstjóri grunnskólamála er næsti yfirmaður allra grunnskólastjóra og skólastjóra tónlistarskóla og hefur aðkomu að og er stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum og rekstri. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri.

Komdu að starfa með okkur!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er næsti yfirmaður grunnskólastjóra og tónlistarskólastjóra og hefur yfirumsjón og eftirlit með rekstri skólanna
  • Er tengiliður á milli stjórnsýslu/rekstraraðila annars vegar og grunnskóla og tónlistarskóla hins vegar m.a með framkvæmdateymi skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs og öðrum teymum sem um málaflokkinn fjallar og framfylgir samþykktum rekstraraðila
  • Er grunn- og tónlistarstjórum og starfsfólki skólanna til ráðgjafar um mannauðs- og rekstrarleg málefni
  • Vinnur að gerð fjárhagsáætlana ásamt grunn- og tónlistarstjórum í samvinnu við sviðsstjóra
  • Umsýsla með gögn, fyrirspurnir og ýmis málefni er tengjast rekstri og mannauðsmálum. 
  • Er í virkum samskiptum og tengslum við grunn- og tónlistarkólastjórnendur með setu á fundum, heimsóknum í skólana og vegna innleiðingar á fjölbreyttum verkefnum s.s. farsældar
  • Móttaka ábendinga og fyrirspurna frá starfsmönnum og stjórnendum grunnskóla- og tónlistarskóla og veitir leiðbeiningar og hefur milligöngu um úrlausn mannauðsmála í samvinnu við mannauðsdeild og stjórnendur skólanna
  • Sinnir skipulagi endurmenntunar stjórnenda skólanna og reglulegum starfsþróunarsamtölum
  • Kemur að innleiðingu og breytingastjórnun í tengslum við ný sett lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og lög um skólaþjónustu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framhaldsháskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði stjórnunar, reksturs, mannauðsmála eða verkefnastjórnunar 
  • Þekking og reynsla af stjórnun og mannauðsmálum 
  • Þekking og reynsla af rekstri  
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu 
  • Þekking á skólastarfi kostur 
  • Afburða samskipta- og samstarfshæfni 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni 
  • Geta til að vinna undir álagi og í breytilegum aðstæðum 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti 
Auglýsing birt20. september 2023
Umsóknarfrestur9. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar