Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Getur þú breytt gögnum í upplýsingar?

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir starf sérfræðings í teymi stafrænnar þróunar á sviði fjármála og framtíðarsýnar laust til umsóknar. Aðgengi að gögnum og greiningar þeirra gegna lykilhlutverk hjá Umhverfis- og orkustofnun. Því leitum við nú að einstaklingi sem hefur metnað fyrir því að sinna krefjandi og fjölbreyttum verkefnum sem fela í sér betri nýtingu gagna og stuðla þannig að bættri þjónustu og gagnadrifinni ákvarðanatöku. Framsetning gagna til almennings og hagaðila skiptir hér sköpum, en eitt af helstu verkefnum sérfræðings verður að leiða tæknilega vinnu við nýjan vef stofnunarinnar þar sem markmiðið er að veita almenningi betra aðgengi en áður að upplýsingum á sviði umhverfis- og orkumála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiðing á nýjum vef Umhverfis- og orkustofnunar
  • Skipulagning, úrvinnsla og miðlun upplýsinga á vefsvæði
  • Þróun lausna til að bæta aðgengi og nýtingu gagna, m.a. með vefþjónustum
  • Almenn þróun á stafrænni þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun
  • Þekking og reynsla af forritun í að minnsta kosti einu af eftirtöldum forritunarmálum: JavaScript, Python og HTML/CSS
  • Þekking á notendamiðari hönnun og viðmóthönnun (UX/UI)
  • Reynsla af vefstjórnun, vefþróun eða hönnun stafrænnar þjónustu
  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að greina og útfæra tæknilegar lausnir.
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti

Viðbótarhæfni sem litið er til:

  • Þekking og reynsla af gagna- og ferlagreiningum er kostur
  • Reynsla af stafrænum lausnum, skýjaþjónustum og sjálfvirknivæðingu ferla er kostur
  • Reynsla af notkun CRM Viðskiptamannakerfa eða sambærilegra kerfa er kostur
  • Reynsla af skýrslugerð og mælaborðasmíði í PowerBi er kostur
  • Reynsla af uppbyggingu og notkun á gagnafötum (Azure Storage, S3) er kostur 
Auglýsing birt6. febrúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar