Blue Lagoon Skincare
Blue Lagoon Skincare
Blue Lagoon Skincare

Stafrænn Markaðssérfræðingur

Blue Lagoon Skincare leitar að metnaðarfullum stafrænum markaðssérfræðingi til að taka þátt í spennandi verkefnum í samstarfi við öflugt alþjóðlegt teymi. Einstaklingurinn sem við leitum að hefur góða innsýn og mikinn áhuga á stafrænum markaðslausnum ásamt því að vera fljótur að tileinka sér nýjungar.

Blue Lagoon Skincare starfar á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og annast þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu á húðvörum undir vörumerkinu Blue Lagoon Skincare. Húðvörurnar komu fyrst á markað árið 1995, hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og eru B Corp vottaðar. Starfsemi fyrirtækisins felur í sér rekstur fjögurra sérverslana auk heildsölu á Íslandi, og rekstur dótturfélaga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með stafrænum auglýsingum á innlendum og erlendum mörkuðum í samstarfi við erlenda samstarfsaðila.
  • Umsjón með Google Business, Meta Business, YouTube og öðrum sambærilegum stafrænum kerfum.
  • Umsjón með verkefnum tengdum markpósti til viðskiptavina ásamt greiningu á árangri.
  • Leitarvélabestun, markhópagreining og AB prófanir til að hámarka árangur.
  • Innleiðing nýrra stafrænna þróunarverkefna í samstarfi við hagaðila.
  • Notkun á vefmælingatólum og skýrslugerð sem miðlar stöðu og árangri til hagaðila.
  • Aðkoma að framleiðslu nýrra síðna á Shopify, vefverslanakerfi Blue Lagoon Skincare.
  • Þátttaka í hugmyndavinnu, þarfagreiningu og þróun fyrir vefi Blue Lagoon Skincare.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun ásamt reynslu af því að setja saman áætlun til að koma vörumerki á framfæri í stafrænum heimi.
  • Umfangsmikil þekking á Google Analytics, Google Ads, Meta Business Manager og markhópagreiningum.
  • Umfangsmikil þekking og reynsla af stafrænni markaðssetningu, PPC herferðum, póstlistaherferðum og samfélagsmiðlum.
  • Þekking á social commerce, affiliate marketing (tengd markaðssetning) og efnismarkaðssetningu.
  • Mjög gott vald á ensku og íslensku.
  • Næmt auga fyrir smáatriðum og umbótasinnuð hugsun.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði til að ná árangri.

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.

Viðkomandi mun hafa starfsstöð Urriðaholti í Garðabæ.

Í boði er starf á lifandi og skemmtilegum vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins ásamt ýmsum öðrum fríðindum sem starfsfólki Bláa Lónsins bjóðast.

Auglýsing birt3. febrúar 2025
Umsóknarfrestur20. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar