

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á endurhæfingardeild Grensás
Starf aðstoðardeildarstjóra á endurhæfingadeild Landspítala er laust til umsóknar.
Endurhæfingardeild Grensás veitir öfluga endurhæfingu á bæði legu- og dagdeild fyrir fólk sem lent hefur í alvarlegum veikindum, slysum eða færniskerðingu og þarfnast sérhæfðrar meðferðar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Á deildinni starfar samhentur og metnaðarfullur hópur sem brennur fyrir það að veita sjúklingum og aðstandendum afburðagóða þjónustu.
Á deildinni er fyrirhuguð mikil uppbygging á næstu árum með tilkomu glæsilegrar viðbyggingar sem verður tekin í notkun árið 2027. Öll aðstaða í nýju byggingunni verður einstök með fleiri einbýlum fyrir sjúklinga, framúrskarandi þjálfunaraðstöðu og kaffihúsi. Hér er því frábært tækifæri fyrir öflugan hjúkrunarfræðing að fá að móta og hafa áhrif uppbyggingu endurhæfingarhjúkrunar til framtíðar.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.
Íslenska




























































