Verkefnastjóri Vinnustundar
Starf verkefnastjóra Vinnustundar á launadeild Landspítala er laust til umsóknar. Um er að ræða dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Við sækjumst eftir öflugum einstaklingi sem er lausnamiðaður, fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og sýna frumkvæði, nákvæmni og aga í vinnubrögðum.
Launadeild heyrir undir skrifstofu rekstrar- og mannauðssviðs og þar starfa 17 einstaklingar. Megin verkefni launadeildar eru að tryggja að launavinnsla, afgreiðsla launa og launatengdra mála hljóti afgreiðslu í samræmi við samninga, lög, verklagsreglur og leiðbeiningar. Móttaka, úrvinnsla, skráning og varsla launagagna eru grundvallarþættir í starfsemi deildarinnar, sem og aðstoð og leiðbeiningar til starfsfólks og stjórnenda. Unnið er í Orra fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins og Vinnustund.
Fjársýsla ríkisins vinnur að þarfagreiningu fyrir nýtt vakta- og viðverukerfi fyrir stofnanir ríkisins. Verkefnastjóri Vinnstundar mun gegna mikilvægu hlutverki í verkefninu á innleiðingartíma nýs vakta- og viðverukerfis.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Í boði er stytting vinnuvikunnar, góð vinnuaðstaða, verkefnamiðað vinnurými og gott mötuneyti.
- Sérfræðingur og faglegur leiðtogi varðandi notkun og þróun á Vinnustund
- Leiðbeina stjórnendum varðandi notkun á Vinnustund
- Útbúa fræðsluefni, annast kennslu og þjálfun varðandi notkun á Vinnustund
- Stuðningur við launadeild varðandi mál sem tengjast Vinnustund
- Stuðla að samræmingu í notkun og skráningu í Vinnustund
- Eftirfylgni og eftirlit með réttri notkun á Vinnustund
- Sinna símsvörun, fyrirspurnum, afleysingu og fleiri verkefnum tengdum Vinnustund
- Ábyrgð á gerð vinnutímaskipulags, aðgangsstýringar og ýmsar stýringar í Vinnustund
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Reynsla og áhugi á að sinna fræðslu, ráðgjöf og miðla þekkingu
- Þekking á Vinnustund eða sambærilegu vakta- og viðverukerfi
- Þekking á kjarasamningum og stofnanasamningum er kostur
- Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Mikil tölvufærni, greiningarhæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Rík þjónustulund, frumkvæði, örugg framkoma og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta