Austurbrú ses.
Austurbrú ses.
Austurbrú ses.

Verkefnastjóri ferðamála á Austurlandi

Ert þú framsækinn og drífandi verkefnastjóri? Hefur þú brennandi áhuga á ferðamálum og jákvæðri þróun Austurlands? Ertu öflugur í teymisvinnu og átt auðvelt með að skapa heildarsýn yfir málefni?

Austurbrú auglýsir starf verkefnastjóra ferðamála á Austurlandi. Starfið felst í að vinna með samstarfsaðilum í ferðaþjónustu á Austurlandi að uppbyggingu og markaðssetningu landshlutans sem spennandi áfangastaðar.

Helstu verkefni starfsins eru samskipti við ferðaþjónustuaðila á Austurlandi, umsjón með samstarfssamningum, gerð markaðsefnis og þátttaka í viðburðum s.s. ferðasýningum og fundum. Virk þátttaka í starfi markaðsteymis Áfangastaðastofu Austurlands innan og utan fjórðungs. Verkefnið er á svæðisvísu og verkefnastjóri mun vinna með hagaðilum á öllu Austurlandi. Búseta á Austurlandi er skilyrði en verkefnastjóri getur valið hvaða starfsstöð Austurbrúar sem aðalsstarfsstöð. Þekking á umhverfi og samfélagi Austurlands er mikill kostur.

Við leitum að verkefnastjóra sem er jákvæður og skipulagður, á auðvelt með að skapa tengsl og eiga í samskiptum við ólíka aðila. Ef þú vilt vinna að mikilvægum og kraftmiklum verkefnum sem fela í sér fjölbreytt viðfangsefni sem efla Austurland, þá er þetta starfið fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti, samráð og fræðsla til samstarfsaðila í ferðaþjónustu á Austurlandi.
  • Kortlagning og þróun ferðamannastaða.
  • Þátttaka í gerð markaðsefnis og miðlun á þjónustu og viðburðum.
  • Umsjón með samstarfssamningum.
  • Yfirsýn og kortlagning á ferðaþjónustu á Austurlandi.
  • Þátttaka í viðburðum og ferðasýningum.
  • Þátttaka í öllu starfi markaðsteymis Áfangastaðastofu Austurlands.
  • Samskipti við ytri hagaðila og stofnanir.
  • Stefnumótun og miðlun á hugmyndafræði Áfangastaðarins Austurlands.
  • Þverfagleg teymisvinna innan allra verkefna Austurbrúar.
  • Önnur tengd og tilfallandi verkefni sem viðkomandi eru falin.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (s.s. á sviði ferðamála, markaðsmála, samskipta eða verkefnastjórnunar).
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og reynsla af teymisvinnu.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Þekking og reynsla af ferðamálum er kostur.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
  • Þekking á samfélagi svæðisins er kostur.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumál kostur.
  • Mjög góð tölvu- og tæknifærni (Office, samfélags- og vefmiðlar)
  • Framsýni, jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Búseta á Austurlandi.
  • Bílpróf.
Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar, sveigjanlegur vinnutími, reglulegir heimavinnudagar, heilsueflandi vinnustaður

Advertisement published14. November 2024
Application deadline27. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Tjarnarbraut 39, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags