Arion banki
Arion banki
Arion banki

Hefur þú brennandi áhuga á vöruþróun og verkefnastýringu?

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í deildina þróun og rekstur á Mörkuðum hjá Arion banka.

Viðkomandi heyrir undir forstöðumann þróunar og reksturs og vinnur í vöruþróunar- og umbótaverkefnum þvert á allar vörur sviðsins, ásamt því að sinna verkefnastýringu. Starfið felur í sér mikil samskipti við hagsmunaaðila og starfsfólk.

Á sviði Markaða hjá Arion banka er veitt margvísleg þjónusta á sviði markaðsviðskipta, eignastýringar, reksturs lífeyrissjóða ásamt Premía þjónustu. Arion banki, ásamt dótturfélögum er leiðandi í eignastýringu á Íslandi með rúmlega 1.500 milljarða króna í eignastýringu.

Deildin þróun og rekstur vinnur þvert á allar vörur sviðsins og ber ábyrgð á þróun, þjónustu, verkefnastýringu, tækni, gæða- og rekstrarmálum sviðsins. Leitað er að einstaklingi sem kemur inn í öflugan hóp aðila sem sinna vöruþróun, verkefnastýringu ásamt mótun og innleiðingu á framúrskarandi stafrænum lausnum fyrir viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og umbætur á vörum og þjónustum sviðsins 
  • Þróun stafrænna lausna  
  • Þróun þjónustu til viðskiptavina 
  • Verkefni tengd skilvirkni  
  • Verkefnastýring stærri þróunar-, umbóta- og lagabreytingaverkefna 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking á lífeyris og verðbréfavörum er kostur 
  • Reynsla af þróun stafrænna lausna  
  • Góð tæknileg færni og áhugi á tækninýjungum 
  • Góð þekking á verkefnastýringu 
  • Góðir samskiptahæfileikar og áhugi á teymisvinnu 
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi 
Advertisement published8. November 2024
Application deadline24. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags