Netorka
Netorka

Sérfræðingur - Gagnavinnsla

Netorka er miðlægur þjónustuaðili fyrir íslenska raforkumarkaðinn og þjónustar öll raforkufyrirtækin, bæði dreifingaraðila og sölufyrirtæki. Einnig útbýr fyrirtækið talnagögn um raforkumarkaðinn fyrir hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir. Nýr starfsmaður mun þjónusta orkufyrirtækin vegna vinnslu í mæligagna- og söluaðilaskiptakerfum. Starfsmaður mun einnig aðstoða við ýmis verkefni sem tengjast úrvinnslu og uppsetningu á gögnum og sjá um tilfallandi verkefnastjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg vinnsla og útreikningar í mæligagnakerfum Netorku.
  • Dagleg vinnsla í söluaðilaskiptakerfum Netorku.
  • Samskipti við orkufyrirtæki.
  • Verkefnastjórnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða sambærilegt.
  • Greiningarhæfni og góð færni í framsetningu gagna.
  • Góð þekking á Excel, Word, Powerpoint.
  • Jákvæðni, þjónustulund og góð samskiptahæfni.
  • Drifkraftur.
Advertisement published15. November 2024
Application deadline25. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags