Sumarstörf á HSU -Heilbrigðisgagnafræðingur í Vestmannaeyjum
Laust er til umsóknar 100% sumarstarf heilbrigðisgagnafræðings við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 2. júní 2025 og starfað til 16. ágúst 2025.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
-
Meðhöndlun, skráning, úrvinnsla og vistun heilbrigðisgagna í rafræna sjúkraskrá.
-
Stoðþjónusta við stjórnendur ásamt þverfaglegri teymisvinnu.
-
Starfsleyfi Landlæknis
-
Góð tölvukunnátta er skilyrði
-
Þekking á Sögukerfinu er æskileg
-
Gott vald á íslensku, góð enskukunnátta kostur
-
Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
-
Til greina kemur að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði eða nemanda í öðru námi í heilbrigðisfræðum.