Sumarstörf HSU-Hjúkrunarfræðingur/nemi óskast á heilsugæslu
Sumarstörf á HSU - Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi óskast á heilsugæslustöð HSU Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema sem hefur lokið þriðja ári í sumarafleysingu í sumar.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum hópi á öflugri heilsugæslustöð, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
- Starfið felst í almennri hjúkrun, móttöku á heilsugæslu, heimahjúkrun og annað sem kemur að heilsugæsluvinnu.
- Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
- Vottorð um hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun eða framvindu í námi
- Hafa lokið þriðja ári í hjúkrunarfræði
- Starfsleyfi landlæknis ef um hjúkrunarfræðing er að ræða
- Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum