Söluráðgjafi Stuðlaberg heilbrigðistækni
Við leitum að heilbrigðismenntuðum starfsmanni í sölu og ráðgjöf á hjúkrunarvörum hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni. Viðkomandi mun sinna móttöku kvenna sem hafa fengið brjóstakrabbamein, veita þeim ráðgjöf við val á vörum og notkun á þeim. Starfinu fylgja samskipti við birgja og innkaup á vörum fyrir móttökuna. Viðkomandi mun einnig aðstoða við sölu og ráðgjöf í stómaþjónustu félagsins.
Starfssvið
- Móttaka, ráðgjöf og sala
- Innkaup og vöruáfyllingar
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Fagleg vinnubrögð og skipulag
- Rík þjónustulund og nærgætni
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2025. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Um er að ræða fullt starf á starfsstöð félagsins að Stórhöfða 25. Móttaka viðskiptavina er á 2. hæð og bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á hlýlegt umhverfi og gott næði í afgreiðslu.
Eirberg og Stuðlaberg heilbrigðistækni eru systurfyrirtæki með sameiginlegar stoðdeildir þar sem nýjasta tölvutækni er nýtt til hagræðingar með áherslu á þjónustu. Markmið okkar eru að auka lífsgæði, efla heilsu, auðvelda störf og daglegt líf.