Sumarstörf á HSU - Sjúkraliði/nemi óskast í heimahjúkrun
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða eða sjúkraliðanema í sumarafleysingu í heimahjúkrun á Selfossi.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum hópi á öflugri heilsugæslustöð, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Selfossi
-
Starfið felst í heimahjúkrun á svæðinu
-
Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Staðfest vottorð um námsframvindu frá skóla
-
Starfsleyfi landlækni, ef við á
-
Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum