Læknastofur Reykjavíkur
Læknastofur Reykjavíkur eru í nýju og glæsilegu húsnæði við Efstaleiti 21b -27c. Aðstaðan og aðbúnaðurinn í húsnæðinu hefur verið hannaður með læknastarfsemi í huga en hér er einnig að finna tvær rúmgóðar skurðstofur með nýjum, fyrsta flokks búnaði.
Hjá Læknastofum Reykjavíkur koma til með að starfa sérfræðilæknar á ýmsum sviðum.
Sjúkraliði óskast í 50-100% starf
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullum, hlýjum og áhugasömum sjúkraliða í 50-100% starf til að ganga til liðs við okkur.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér að fylgast með og aðstoða skjólstæðinga á vöknun eftir skurðaðgerðir, þrif og sóttreinsun áhalda og aðstoða við minni aðgerðir.
Við óskum eftir einstakling sem er helst með reynslu í svipuðu starfi. Einnig þurfum við einstakling sem hefur getu og áhuga á að vinna undir álagi við spennandi og fjölbreytt verkefni. Starfið er laust nú þegar og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða og fylgjast með skjólstæðingum á vöknun
- Þrif og sótthreinsun áhalda
- Aðstoða lækna og skjólstæðinga
- Innkaup á rekstrarvörum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliðapróf
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Faglegur metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Lipurð og gott vald í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót
- Skipulögð vinnubrögð
- Vinna sjálftætt og í teymi
- Stundvisi
Auglýsing birt28. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 27
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf
Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf
Umönnun sumarstarf - Ísafold
Hrafnista
Sumarstarfsmaður óskast í iðju- og dagþjálfun.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Vertu hluti af framtíð velferðarþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sumarstarf á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
Sunnuhlíð
Sumarstörf á HSU - Starfsmaður í býtibúr Hraunbúðir
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Sumarstörf á HSU - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar Hraunbúðir
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili langveikrar stúlku
Reykjanesbær
Velferðarsvið – Þjónustukjarni Suðurgötu
Reykjanesbær
Óska eftir hressu NPA aðstoðarfólki
NPA miðstöðin
Sumarstarf - Umönnun
Heilsuvernd Vífilsstaðir