NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á helgarvaktir

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á helgarvaktir

36 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á helgarvaktir.

Æskilegt er að viðkomandi sé 35 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.

Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.

Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.

Athugið að á heimilinu er lítill hundu/hvolpur.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.

Vaktirnar sem um ræðir eru fjórðu hverja helgi s.s. sirka eina helgi í mánuði.

Það er þá

  • Föstudag og laugardag 17-23 og sunnudag 20:30-23:30

og svo

  • Laugardag eða sunnudag 11-16.

Hæfniskröfur:

  • Þolinmæði.
  • Frumkvæði.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Að vera hvetjandi og skapandi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.

Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt28. janúar 2025
Umsóknarfrestur11. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar