Geislafræðingur óskast á myndgreiningardeild Vestmannaeyjum
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða geislafræðing á myndgreiningardeild HSU í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða framtíðarstarf á framsæknum vinnustað.
Þjónustusvæðið HSU nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri og veitir HSU heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu.
Um er að ræða 75% starf, ásamt bakvöktum frá kl. 16:00 til 24:00 á virkum dögum og frá kl. 8:00 til 24:00 um helgar.
Starfið felur í sér röntgenrannsóknir og tölvusneiðmyndarannsóknir.
- Röntgenrannsóknir
- Tölvusneiðmyndarannsóknir
- Þátttaka í verkefnum innan stofnunarinnar
Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur
BS. próf í geislafræði skilyrði
Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögð
Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Góð hæfni í mannlegum samskiptum