Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæsluna á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í 100% starf á Selfossi. Um er að ræða starf á heilsugæslu auk heimahjúkrunar.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða almenna heilsugæsluhjúkrun, heimahjúkrun auk annara tilfallandi verkefna sem tilheyra heilsugæsluhjúkrun.
- Starfið er fjölbreytt með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
- Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
- Starfsleyfi landlæknis.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
Auglýsing birt21. janúar 2025
Umsóknarfrestur3. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Enska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Hjúkrunardeildarstjóri hjartadeildar
Landspítali
Hjúkrunarnemar, sjúkraliðanemar og læknanemar - sumarstörf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun – Sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Landspítali
Teymisstjóri heimahjúkrunar í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarnemar 1. og 2. árs á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Landspítali
Hjúkrunarnemar 3. og 4. árs á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur óskast í ungbarnavernd
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Hjúkrunarnemar á 1., 2. og 3. ári - Hlutastörf með námi á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild lyflækninga Fossvogi
Landspítali
Sjúkraliði óskast á sameinaðri endurhæfingardeild Landakoti
Landspítali