Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Sumarstarf – Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar

Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.

Við leitum nú að hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarfræðinemum til starfa í sumar. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrunarstörf
  • Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
  • Þátttaka í þróunarverkefnum
  • Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur eða að viðkomandi hafi lokið 2. ári í hjúkrunarfræði
  • Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
  • Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku
Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur2. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar