Erum að ráða hjúkrunarfræðing
Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.
Við leitum nú að hjúkrunarfræðingi til starfa. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúinn til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Almenn hjúkrunarstörf
- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
- Þátttaka í þróunarverkefnum
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Umsækjandi þarf að geta talað og skrifað íslensku